Mundi og Úlfur
Úlfur töffarinn minn
Ég er búin að setja inn ótal myndaalbúm á Facebook ef þið viljið kíkja á það. Það tekur svo langan tíma hér á blogginu að ég set bara nokkrar myndir hér inn.
Sólin skín sem aldrei fyrr og þetta er yndæll öskudagur og gaman fyrir krakkana að vera úti. Ásta er auðvitað í skólanum enda vaxin upp úr þessu fyrir þó nokkru eða hvað?
Ég fór í afmæli með honum Ingó mínum um síðustu helgi til Ingvars vinar okkar sem rak Saltabarinn. Hann var fimmtugur og Greifarnir tróðu upp hjá honum en við Ingó og Viddi mættum í veisluna. Hér eru skvísu myndir af mér að fara í veisluna.
Blondie með meiru
Svo er bara skólatörn framundan próf og verkefni en það líður vonandi fljótt og þá kemur sumar og þá verð ég eitthvað í skólanum og þá er bara eitt ár eftir!!! jei hei...
Var í viðskiptalögfræðiprófi í gær og held að mér hafi bara gengið þrusu vel svo ég bíð spennt eftir útkomunni.
Jæja hef þetta ekki lengra í bili bið að heilsa öllum á þessum öskudegi sem er yndislegur hér í Reykjavík

4 comments:
gaman að þú sért farin að blogga aftur :) AH
Sammála. ÁA.
hér er ekki haldið upp á öskudag. Eins og er eru allir uppteknir af því hvað það er mikill snjór hér. Ekki verið svona mikill snjór í yfir 20 ár. Það komu 40 cm hér í gær. Þetta er að verða ágætt. Fljótlega vil ég nú fá vor. Við erum frísk og ánægð með okkur hér. Hrafnhildi gengur vel í skólanum sem hún byrjaði í eftir áramót, Montessori skóla. Það er miklu rólegra í þessum skóla. Bara 112 nemendur í staðinn fyrir 420 í skólanum sem hún var í fyrir jól.
Langar að fara að heyra í þér. Reyndi að hringja í gær, laugardag, en síminn er bilaður hér svo að við getum ekkert hringt úr heimasímanum. Vonandi lagast það fljótlega.
Bestu kveðjur Lóla og co
gaman að heyra frá þér Lóla mín ég ætla að reyna að henda hér einhverju inn við og við. Reynum að tala saman sem fyrst þessi önn er bara búin að vera hræðilega leiðinlegt og lítið að segja hehe
Post a Comment