Ásta mín er farin að læra á bíl og stefnir á að taka prófið rétt eftir afmælið sitt og ég vona að það gangi upp. Hún er á fullu í leikritinu í Kvennó og er búin að þurfa að vera rosalega mikið á æfingum. Henni finnst þetta voða gaman en þetta tekur ansi mikinn tíma. Svo er auðvitað nóg að gera í skólanum, félagslífinu og bara öllu hehe. Í kvöld er hún að fara að vera módel á kvennakvöldi á Thorvaldsen. Ásta mamma hennar Jasmínar bað hana um þetta. Hún fær rosa flotta greiðslu og förðun og verður í fötum frá E-Label (sem Ásta mamma Jasmínar er einn af eigendum af) og verður uppi á palli að sýna þau. Ekki leiðinlegt og svo fær hún úttekt hjá E-Label fyrir. Nú Guðný er alltaf með Jasmín og nú eru einhverjir drengir komnir í hópinn og þau hanga saman öllum stundum voða stuð. Hún er búin að vera aðeins latari að mæta á fótboltaæfingar en mætir þó. Úlfur er búin að keppa á 2 fimleikamótum með stuttu millibili og hans hópur fékk silfur í bæði skiptin og hann ekkert smá monntin. Hann er glaður og nóg að gera og hann á mikið af vinum svo þetta er allt hið besta mál. Ingó hefur haft nóg að gera. Hann er t.d. á morgun að spila með Greifunum á Spot í Kópavoginum þar sem stefnt er á að fylla kofann. Hann er búin að spila töluvert með Greifunum, svo er eitthvað búið að vera að gera með Spútnik. Einnig var hann að spila á Deep Purple tónleikum í síðustu viku sem ég missti af vegna veikinda. Svo er hann að æfa með Herberti Guðmundssyni, fer líklega að spila með Toto bandi eftir smá tíma og svo spilaði hann í söngvakeppni Tækniskólans. Svo er hann að bera út svo það er nóg að gera hjá honum.
Ég er að fara að læra undir próf í mannauðstjórnun sem ég tek á mánudaginn en ég ætla að fara í kaffi til Ingigerðar á morgun og hlakka mikið til. Hef ekki séð hana lengi og það verður mikið sem hægt verður að tala um :-). Ætla að sjá til hvort ég skelli mér á ballið á laugardagskvöldinu á Spot. Veit að Malla ætlar að koma svo það væri gaman að hitta hana og ég skora á alla að mæta.
Jæja er farin að læra góða helgi og hafið það sem allra best.

4 comments:
Leiðinlegt að heyra að þú ert í svona leiðinlegum fögum. En þú hristir þetta nú þessi leiðindi af þér og stendur þig eins og hetja. Ég er reglulega stolt af þér að vera í þessu námi.
Í dag er fyrsti dagurinn í meira en tvo mánuði sem er plús gráður, en því miður á að frysta aftur og snjóa meira. Mig er farið að langa til að vorið komi.
Það er búið að vera ansi erfitt í vinnunni nú eftir áramót, barnahópurinn hefur stækkað og því fylgja fleiri vandamál.
Á heimilinu okkar gengur allt vel. Það er orðið léttara fyrir börnin að koma og fara. Það er mikið að gera á stóru heimili.
Við keyptum okkur nýjan bíl fyrir viku, toyota previa með 6 sætum. Nú fá allir pláss í sama bíl án þess að þurfa að næstum sitja á hver öðrum.
Hlakka til þegar við heyrumst næst, sem verður vonandi fljótlega.
Knús Lóla
æ hvað það er gott að heyra í þér hér á blogginu mínu reynum að gera það sem oftast. Ég er bara svo léleg að hringja hef ekki verið alveg í stuði til þess undanfarið hehe
Gaman að fá fréttir af þér Lóla og gott að allt gengur vel!
Búin að kommenta á mörgum stöðum Lóla, hélt að þetta hefði ekki komið inn :)
svo þú sérð hvað ég er glöð með að fá fréttir af þér ;)
Post a Comment