Dísarblogg

Saturday, February 27, 2010

kvef og hiti

Enn og aftur er ég komin með smá hitavelling. Líklega þyrfti ég að komast á einhver lyf þar sem ég bara hósta upp slími og er bara já slöpp. Hef átt að vera að lesa undir próf í mannauðstjórnun en kem mér illa að því. Efnið höfðar ekki beint til mín og svo er ég bara slöpp. Í gær var bara slappað af heima og horft á skemmtilega þætti í tölvunni. Í dag fór ég til Ingigerðar og Sigtryggs í kaffi. Það var rosa gaman og Sigtryggur bakaði franska súkkulaðiköku hana mér frekar góða. Kristín Ásta í stuði eins og allaf og það var gaman að sjá hana standa upp við sparkbílinn sinn sem hún snýr þversum og ýtir á undan sér og þegar hún sér Lubba þá tekur hún á sprett og reynir að klessa á hann hehe hún veit sko alveg hvað hún er að gera. Svo tók ég hana og fékk marga stóra vel blauta kossa frá henni og hún skríkti af kæti yfir þessu öllu. Hún er bara draumur.
Planið mitt var að fara með Ingó á Greifaball á Spot í kvöld en þar sem ég er komin með hita þá verð ég heima. Ætlaði að hitta Möllu en hún verður að dansa án mín í þetta skiptið. Úlfur er hjá tengdó, Guðný er hér hjá mér og Ásta er að fara eitthvað út svo kvöldið er nú bara rólegt.

6 comments:

Anonymous said...

Vonandi ferðu að hrista af þér þennan slappleika. Verður að vera frísk til að klára þessi leiðinda fög svo að þú verðir laus við þau. Illu er best aflokið.
Nú er farið að rigna hjá okkur, ógeðslegt færi á götunum.
Kveðja til saumaklúbbsfélaga minna.
Knús Lóla.

Thordisa said...

já gamla mín skila því það er klúbbur hjá Unu á morgun skal reyna að taka myndir kannski getum við farið á skype og spjallað við þig!!! Ég er komin með kinnholubólgur og komin á lyf svo vonandi fer þetta nú að verða betra. Hér er líka farið að hlýna eftir skyndilega snjókomu sem ruddist hér yfir allt um helgina og það farið að bráðan og ég vona að það fari bráðum.

Þorgerður said...

Gott að frétta af þér Lóla og vonandi gengur allt vel.

ellen said...

blessud vinkona, ekki gott ad heyra um veikin thín, thú verdur ad byrja á ad corda goji ber, ég byrjadi ad borda svo sem eina - tvaer matskeidar af theim á dag fyrir svona 4 mánudum sídan og hef ekki verid kvefud sídan thá, prófadu thetta!
Annars allt gott hédan :)

Thordisa said...

ok Ellen hef ekki heyrt um þetta verð að prófa.

Anonymous said...

Heitir þetta cojiber???? Hvað er það nú? Gott að sjá pikk frá þér systir sæl. Ég hef ekkert skrifað og verið andlaus um tíma. Alveg framtakslaus. Vildi helst bara lesa bækur og hofa á sjónvarpið, þvílíkt! En nú fer sólin að hressa mann við. Vona að þú hressist líka.