Wednesday, August 29, 2007

Líkamsrækt, súpur og samningar

Búið að vera nóg að gera undanfarið. Mætti í ræktina á laugardaginn með Sædísi. Tókum brennslu og svo góðan tíma í pottunum og nuddinu. Rosa næs enda hef ég ekki hitt hana lengi. Um kvöldið var hann Gummi frændi minni sonur Sigynar mágkonu með sína fyrstu tískusýningu þar sem peysulínan hans var kynnt ásamt buxum og kjólum sem hann hefur hannað. Þetta var alveg frábær sýning þó svo hávaðinn hafi verið meiri en góðu hófi gegnir. Á sunnudaginn eldaði ég súpu til að eiga í þessari viku því prógrammið í vikunni er að borða eðlilega fram að hádegi en svo bara vera á fljótandi fæði. Og ekki misskilja við erum ekki að tala um að drekka bara vatn. Heldur taka 3-5 ávexti og mauka þá, taka grænmeti og mauka það og borða svo holla og góða súpu maukaða. Þetta gerum við til að létta á meltingunni og fá fullt af vítamínum og steinefnum. Nú svo fór ég á stúfana með Áslaugu systur, Arnhildi, Margréti og Guðnýju löbbuðum um í Smáralindinni og þær voru svona að versla. Affí og Valdemar komin suður og hann fékk íbúðina sína á görðum í gær. Nú pabbi, mamma, Áslaug og Margrét fóru til Þýskalands í gær og þau gömlu koma eftir 6 vikur. Ég fór til Lindu í hádeginu í gær og hún bauð mér upp á þetta dýrindis kjúklingasalat og speltbrauð og við áttum huggulega stund saman. Annars er það markverðasta úr vinnunni að ég skrifaði undir stóran samning fyrir hönd Gutenbergs við 2B Company. Það er fyrirtæki í eigu Bigga Nielsen og hans Björgvins sem ég vann eitt sinn með á ÍT ferðum. Við vorum s.s að taka að okkur að prenta Sjónvarpsvísi Suðurlands fyrir þá endilega skoðið hér þessa fínu mynd sem var tekin af okkur www.gutenberg.is

Nú svo var saumó í gær hjá Möllu við allar mættar voða gaman mikið hlegið og gott að við erum búnar að starta þessu í vetur.

Svo var ég mætt kl hálf 7 upp á Nordica og þar var tekið vel á svo þetta er allt á góðri leið.

Friday, August 24, 2007

The Secret

Jæja komið að helgi síðasti dagurinn í þessari viku. Búin að fara 10x í ræktina síðan í byrjaði í átakinu. Fór í gær upp á Nordica með Ingigerði og ætlunin var að lyfta. En við vorum dregnar í Body Pump tíma sem var bara fínt. Eftir hann fórum við í pottinn og þar fékk ég það magnaðasta nudd sem ég hef fengið lengi. Nuddarinn nuddaði mig í 15-20 mín (og líka Ingigerði)og það var bara ótrúlegt. Á endanum var ég bara orðin dofin í vörum og höndum og þurfti að drekka vel af vatni því mér var orðið svo heitt. En maðurinn losaði líka vel um í öxlunum á mér ég er eins og ný. Fórum svo á Vox og fengum okkur að borða og svo kl 19:30 var farið upp í ráðstefnusal ásamt öllum sem eru á námskeiðunum og horft á The Secret. Sú mynd fjallar um það að þú getur tekið stjórn á lífi þínum með jákvæðum hugsunum. Að þú eigir aldrei að hugsa um neikvæða hluti heldur vera jákvæður og lofa það góða í lífi þínu. Að með huganum getir þú afrekað allt sem þú vilt. Mæli alveg með að fólk horfi á þessa mynd. Var reyndar orðin dauðþreytt þegar heim kom.

Í morgun var það svo upp kl 6 og byrjað að lyfta hjá Gunna kl 6:30 dugleg stelpa. Nú svo er helgarplanið það að mamma og pabbi eru hjá mér og Áslaug og Margrét koma á laugardaginn ásamt Arnhildi. Gummi er með tískusýningu í Loftkastalanum á laugardagskvöldið og ég þangað vona að Þorgerður komi með mér og jafnvel Kristín. Dreg þetta ættingjalið allt með. Nú svo ætla ég að fara á Nordica taka smá lyftingar og svo bara laga til og undirbúa næstu viku.

Hér held ég áfram að setja inn myndir og nú koma myndir úr fermingu Margrétar sem var 28 júlí í sumar.

Margrét sæt og fín

Margrét, Áslaug og Klaus

Pabbi langflottastur

Flott stelpa

Maddý syngur og Bibba frænka spilar undir

Maddý, Láki, Ássý og Lilla

Klaus, Margrét,Áslaug,mamma og pabbi



Flott veisluborð







Gerður á Skútustöðum og Lilla frænka

Malla, Kristín og Maddý

Sirrý, Sigyn og Diddi bróðir

Söngkórinn ógurlegi



Fríða frænka með Dóróteu og Ólöfu Kristínu dætur sínar

Pabbi spilar og Aldís greynilega í kasti + Þuríður,Ásta og Lilla

Fermingarbarnið

Los gelgos Ásta, Aldís og Þuríður Anna

Gerður, Ingólfur og séra Örnólfur

Ingó minn, Sella og Guðný

Hver önnur en hún Sigyn flotta mágkona mín gæti búið til svona skreytingu

Inga, Láki og Hulda María

Helga Margrét

Ástþór Örn sæti litli frændi minn

Alexander ásamt Diddunum

Helga Margrét og Guðný með Ólöfu Kristínu dóttur Fríðu og Örnólfs sín á milli

Pabbi og mamma ásamt börnunum sínum

Fermingarbörni Margrét,Friðrik og Ásta en þau voru öll skírð saman

Og svona var haldið á þeim undir skírn

Áslaug og dætur

Brói og Svanhildur mágkona sem er blómleg með barn undir belti

Siggi Jóns og dætur

Ásta, Aldís og Þorgerður gelgja

Ásta og Guðný fallegu stelpurnar mínar

Ástþór Örn, Guðný og Eiríkur Hákon frændsystkynin

Verðið að opna pakka



Maddý og Áslaug Sigurðar

við Þorgerður alltaf jafnflottar

Læt hér staðað numið í dag þið sem hafið verið að þrýsta á með myndir ættuð að vera ánægð. Held áfram að setja inn myndir næstu daga.

Thursday, August 23, 2007

sól og rigning til skiptis

Seinni partinn í gær komu Helga frænka og Doug með Önnur Birnu og Dillan Veigar. Rosa gaman að hitta þau ekki séð þau lengi. Helga sagði mér að þau væru búin að kaupa hús í Boston rétt hjá þar sem þau búa núna og það væri gestaherbergi s.s. ég mætti koma í heimsókn :-) Væri nú nett til í að fara til USA þarf að versla he he... Fór svo með krakkana til Lindu og Ása um kvöldmat þá hafði Ingó verið að hjálpa til við að losa gáminn sem kom með dótið frá USA í gær. Ekki gaman að bera upp tröppurnar í Álfheimunum en með samhentu átaki voru þeir sem þarna voru búnir að bera allt upp. Eftir matinn fór Ingó með krakkana heim og Ási með dætur sínar í sund og þá vorum við Linda einar í fysta skipti síðan hún kom frá USA. Skemmtum okkur við að taka utan af húsgögnum og raða í stofuna fram og til baka, hlægja og rifja um gamla tíma. Linda mín takk fyrir gærkvöldið þetta var frábært. Þegar heim kom voru mamma og pabbi komin. Þau fara með Áslaugu systur til Þýskalands í næstu viku en í dag er jarðarför séra Sigurðs Hauks góðs fjölskylduvinar sem við syrgjum öll.

Eftir vinnu í dag ætla ég að fara að lyfta og hún Ingigerður ætlar að koma með mér. Svo ætlum við að fara í pottinn, gufuna og bara taka dekurpakka. Enda svo á að borða á Vox og svo kl hálf 8 mætum við öll sem erum á námskeiðinu upp í ráðstefnusal og horfum á The secret sem er víst frábær mynd um hvernig þú átt að ná tökum á lífi þínu. Svo dagurinn er pakkaður. Ingó greyið verður hins vegar sendur til Arndísar að hjálpa þeim að flytja svona er þetta alltaf allri á sama tíma að gera allt. Krakkarnir byrjuðu í skólanum í dag svo nú fer rútínan að komast í samt lag aftur.

Hér koma svo nokkar myndir frá Akureyri í sumar.

Elli og pabbi í Litluhlíð


Affí og Áslaug svolítið þreytulegar

Mamma og Klaus

Guðný mín sæta á Akureyri

Mesta skvísan

Sigyn að mála fermingarkertið hennar Margrétar

Eiríkur Hákon og Margrét Wendt

Pabbi átti 80 ára afmæli þann 27 júlí. Hann bauð í hangikjöt heim til Affíar. Hann bauð bara allra nánasta fólkinu sínu þar sem þetta átti ekki að vera svo fjölmennt. Læt hér fylgja nokkrar myndir úr þessu boðið.

Afmælisbarnið


Bibba frænka

Ingó minn

Frænkurnar saman næst alltaf svo dásamlega mynd af okkur!!!

Sætar systur Arnhildur og Margrét

Áslaug systir svaka flott

Mamma fína

Svo eru til fleiri myndir en þær eru á Ástu vél og ég á eftir að setja þær inn. Þetta er allavega gott í bili..