Vikan leið hratt og ég bara settist ekkert niður til að blogga. Í dag er rigningarlegt en haustlitirnir eru samt svo dásamlegir. Úti í garði er rabbarbarablaðka fagurrauð og mér finnst náttúran undursamleg á þessum árstíma. Vildi þó að hér stoppaði allt og yrði bara aftur grænt því vetur og kuldi er ekki fyrir mig. Ég tók þá ákvörðun að hætta í gerð og greiningu ársreikninga og vera bara í 4 fögum á haustönn. Er ansi sátt við að hafa tekið þessa ákvörðun og vona að það veiti mér kraft til að ná hinum fögunum með stæl. Lilja sagði sig úr þessum með mér og við ætlum að taka þetta næsta vetur. Var í gær uppi í skóla frá 10 til 18 að reikna tölfræði og klára verkefni í rekstarstjórnun sem við eigum að skila í dag.
Ég fór á fimmtudagskvöldið og hitti bekkjarsystur mínar úr 4-G heima hjá Hjördísi Halldórs. Það var ekkert smá gaman. Við Linda fórum saman og þær sem mættu voru Valdís Vera, Kristín, Ólöf, Svava Halldóra, Ragnhildur og Svanborg. Bara nokkuð gott myndi ég telja þar sem slatti af liðinu býr úti á landi. Það var mikið rætt og spjallað og við ætlum að hittast fyrr en síðar aftur. Tók nokkrar myndir úr þessu boði en set þær inn næst.
Núna erum við Ingó á leiðinni til Ingigerðar og Sigtryggs í smá sunnudagsheimsókn. Úlfur er farinn í sund með Agnari, Jasmín náði í Guðnýju og fór með hana í Smáralindina og Ásta er að fara að læra.
Núna er ég að reyna að hafa það fyrir reglu að elda eitthvað gott um helgar, leggja á borð inni í stofu og kveikja á kertum og hafa kósý fjölskyldumat. Það er bara notarlegt að gera svona. Jæja ekki meira í bili. Endilega kvittið ef þið kíkið hér inn.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

6 comments:
kvitt, kvitt - haustkveðjur frá Þjóðverjalandi, Aldís
kvitt kvitt fá Gautaborg. Hér er líka rigning en thad einhvernvegin allt í lagi á haustin, aftur á móti er haustid seint thérna og vid erum ekki farin ad njóta haustlitanna enn.
Hafdu thad gott vinkona.
Mér líst heldur betur á lagt á borð og góður matur um helgar! Það þarf að kenna börnunum að huggulegheit séu mikils virði og láta þau læra að meta smáatriðin. Við borðum allt of oft framan við imbann. En við mæðgur elskum að punta smá. Nú, hugurinn heima og vonandi gengur þetta allt vel. Enn og aftur er maður of langt í burtu og getur lítið aðstoðað. Treysti á ykkur að vera dugleg að hringja og fylgjast með. Bless og hafðu það gott, þín Áslaug.
Ah já elska litina í rabbabaranum. Ég hlakka annars til að sjá myndir úr 4G teitinu, þið eruð svo duglegar að hittast...
bara að kíkja til að segja hæ þórdís mín og þakk fyrir síðast. knússssssssss
kvitti kvitt :o)
Post a Comment