Monday, November 26, 2007

Komin heim

Þá erum við komin heim eftir góða helgi á Akureyri í hörku frosti um 12 stig á sunnudaginn. Það var frábært að hitta alla sem við náðum að sjá en leiðinlegt að hafa ekki tíma til að sjá alveg alla. Á laugardagseftirmiðdaginn fórum við Ingó niður á hótel til strákanna. Ég stoppaði í um klst en Ingó varð eftir og fór út að borða með þeim á Greifann um kvöldið en ég fór til Affíar ásamt krökkunum og mömmu og pabba í svaka veislumat. Átti þar notalega stund áður en ég fór heim að taka mig til. Áður en ég fór niður í bæ að hitta manninn minn fór ég í heimsókn til Maddýjar móðursystur og skoðaði það sem hún keypti í USA og eins það sem hún fékk í sextugsafmælisgjöf. Síðan var ég mætt niður á hótel til strákana um hálf 11. Ingó var bara í rólegheitum með þeim að horfa á tv svo ég settist bara með þeim og við sátum og kjöftuðum framundir kl 12 en þá var mæting á Vélsmiðjuna. Það var troðfullt þegar við komum og svaka stemning og allir bara biðu eftir að bandið byrjaði. Ég var ein svo ég fór alveg fremst með myndavél og byrjaði að taka myndir því ég er orðin hirðmyndari hjá Spútnik. Afrakstur má sjá á www.sputnik.is bara nokkuð skemmtilegar þó ég segi sjálf frá. Hér koma nokkrar

Ingó sæti maðurinn minn

Við Ingó saman á Vélsmiðjunni erum við ekki sæt saman

Nú þegar ég var hætt að taka myndir þá vantaði mig einhvern til að dansa við og engan þekkti ég þarna svo ég vissi ekki alveg hvað ég átti að gera. En viti menn haldið þið ekki að hún Áslaug mín systir hennar Brynju hafi mætt á svæðið. Sá á blogginu að ég ætlaði að vera þarna sendi mér sms líklega á gamla númerið mitt fékk ekki svar en mætti samt. Áslaug perla þú reddaðir kvöldinu fyrir mér.

Áslaug og Þórdís mynd sérstaklega tekin fyrir Brynju okkar í Svíþjóð

Það er merkilegt að fylgjast með fólki á svona böllum. Í fyrsta lagi var eitthvað um útlendinga og þegar einn Pólverji var búin að reyna hvað eftir annað að fá mig á gólfið ítti ég honum frá mér. Þarna voru hópar saman sem höfðu verið þarna á jólahlaðborði og svo voru bara einstaklingar að skemmta sér. Fyndnastar voru the grúppís nokkrar tróðu sér beint fyrir framan sviðið og dilluðu sér ákaft þótt ekki væri fegurðinni fyrir að fara. Við Áslaug urðum að sjálfsögðu að taka þátt í þessum leik og tróðum okkur fremst þar sem ég fékk skemmtileg komment frá Kidda K allt kvöldið um hinar og þessar píur sem voru að dilla sér fyrir framan þá. Ein þeirra tók nú hreinlega bara súludans fyrir framan hann. Svo voru það píurnar sem héldu sér aðeins til hlés en mættu samviskusamlega bæði kvöldin í von um að vekja athygli á réttum stöðum sorry en tókst ekki enda okkar menn allir harðgiftir og það vel.

Nú við vorum ekki komin upp í rúm fyrr en um kl 6 þennan morgun og frekar þreytt bæði í gær þegar við vöknuðum um kl 1. Fórum þá á Búlluna og hittum Kidda K og Kein og fengum okkur að borða með þeim. Mamma hafði farið með þau litlu til Lillu í laufabrauð og leyft okkur að sofa. Síðan var farið á Vélsmiðjuna að róta í bílin og um 4 leytið rendum við af stað heim.

Nú ég var búin að lofa myndum úr Heiðmörk en þangað fórum við Ingó um daginn með krakkana í æðislegu veðri og hér koma þær. Ath allar listrænar myndir tók hún Ásta.

Ásta mín

Kalt í veðri en rosalega fallegt



Ótrúlega fallegt veður þennan dag











Guðný komin í leiktækin

Við Ingó

Guðný að leika sér

Ásta fyrirsæta

Erum við ekki sæt saman

Úlfrur að fikra sig upp, eina myndin af honum hann var svo upptekin með vini sínum

Guðný

Ásta

Sætu ólíku mæðgurnar

Guðný með pabba og mömmu


Fullt af snjó sá mesti sem hefur komið í vetur

Guðný komin í leiktækin

Ásta að reyna að komast uppá

Guðný með pabba og mömmu en með þeim vill hún helst vera

Komin upp

Þá læt ég þetta duga í bili. Ingó situr hér við hlið mér og er að vinna í verkefni fyrir Háskólann og bráðum ætlum við að fara að sofa. Ég er allavega loksins búin að setja þessar myndir inn komið nú með komment elskurnar mínar.



15 comments:

Anonymous said...

Hæ dúllan mín, gott að heyra að þið skemmtuð ykkur vel fyrir norðan. Æðislegar myndirnar af ykkur, endilega hóið í okkur næst þegar þið farið. Verð að commenta sérstaklega á myndina af ykkur Ástu saman, finnst þið ættuð að ramma hana inn:-)
Heyrumst mín kæra....

Anonymous said...

Sammála Heiðrúnu, myndin af ykkur Ástu er sérstaklega góð :)

Anonymous said...

Mjög flottar myndir af fjölskyldunni. Ég er sammála fyrri ræðumönnum - myndin af ykkur mæðgum er mjög flott.
Lóla.

Thordisa said...

Takk elskurnar mér finnst líka myndin af okkur Ingó þessi sem er tekin nálægt flott.

Anonymous said...

Flottust myndin af ykkur mæðgunum - náðir ekki að smella upp myndasvipnum þínum - hehe...
Seinkun á flugi, kom heim kl.05 svo dagurinn í dag verður örugglega langur.
Heyrumst og skipuleggjum konfektgerð tímanlega fyrir jólin!!

Berglind Rós Magnúsdóttir said...

Frábærar myndir, sammála öðrum um myndina af ykkur Ástu, mjög skemmtileg mæðgnamynd. Þið Ingó eruð alltaf sæt saman. Gaman líka að sjá nokkrar af náttúru Íslands í haustlitunum - skerið er alltaf flott.

imyndum said...

Skrifa undir allt ofansagt en verð að bæta við að Ásta er nú alltaf að verða líkari þér eftir sem hún þroskast meira. Eitthvað að gera með hökuna og munnsvipinn

Anonymous said...

Þið fallega fjölskylda :-) Glæsilegar myndir allt saman. Frábært hvað það er alltaf nóg að gera hjá ykkur.
Hlakka til að hitta ykkur í jólasaumó, þið kanski mynnið mig á það þegar nær dregur. Er ekki alveg með fulla fimm þessa dagana.

Kv Dagný

brynjalilla said...

yndislegar myndir sérsatklega af þér og fallegu yndislegu systur minni, fékk svo stóran sting, saknaðarsting, jólaheimþráin er að hellast yfir mig, hefði gefið á mér bæði eistun ef ég ætti fyrir að vera með ykkur Áslaugu þetta kvöld. Mér finnst þið Ásta annars nauðalíkar, stórfallegar báðar tvær!

Unknown said...

Rosafínar myndir af ykkur :)
Skondið að mig dreymdi foreldra þína í nótt og pabbi þinn var svo ægilega unglegur og sætur :)

Bestu kveðjur frá Egils :)

Anonymous said...

Mér finnst þið öll voðalega sæt fjölskyldan:-) tek líka undir með öllum hinum að þetta er geggjuð mynd af ykkur Ástu

kv.Gyða

Anonymous said...

Svo gaman ad fá ad sjá ykkur öll saman á thessum myndum (flottar myndir)og ég hefdi virkilega verid til í ad vera med thér á Vélsmidjunni og dansa :)

Thordisa said...

Takk elskurnar fyrir öll þessi góðu komment og ég sakna ykkar allra voðalega mikið því ég sé ekki mikið af ykkur nema helst saumógellum við og við og stundum hana Gyðu mína.

Anonymous said...

Loks nyjar myndir.Flottar. God nyja hargreidslan hennar Astu.Er hun ad likjast Aslaugu ömmu sinni?Thad er nu myndar kona. Rigning her og hvasst. En settum upp alls konar ljos i thessu dimma landi. Ekki verid ad eyda miklu i rafmagn, hi,hi. En vid erum eitthvad islensk i thessu. Gledilega adventu, og njottu hennar vel. Thin systir Aslaug

Anonymous said...

[p]His design works always surprising . Founded by a group of Spanish handicraftsmen in 1846, Loewe belongs to LVMH group now . Gucci name is also found cheap prada handbags on watches as well as perfume . The most important thing to consider if the quality of the bag you require, what do you need it for, in other words? Or what do you want to say about your brand and company? You need to pick these with care since as they will be carrying your message . Nylon bags

Nylon bags may be the lightest bags . The actual purses research such as products you have observed upon a number of additional websites, Prices will also be superb to become proper considerably less compared to 50 % associated with list . You will find additional compared to sufficient websites promoting handbags nowadays . com.[/p][p]As the following bags I want to share with you . I personally love the Maison small shoulder bag in purple and I think the Skye slim laptop bag in Peacock is absolutely divine . To ensure you are able to purchase only from dependable vendor, a good web based auction page has strategy for your needs to examine feedback of each and every vendor . That is [url=http://www.cchanelhandbagssale.co.uk]chanel handbags[/url] impressive . Before introducing these products, the brand comes into my mind firstly . Those days, designer handbags, with their unique yet elegant design and impressive quality of materials, are a great way to make a fashion statement . Many companies, depending upon their marketing approaches, prefer to use printed carrier bags to advertise their [url=http://www.chanelbagsoutlett.co.uk]chanel bags[/url] brand and message.[/p]