Dísarblogg

Wednesday, October 21, 2009

Veik

Jæja ekki slapp maður við svínaflensuna og þar að auki fékk ég lungnabólgu líka. Vaknaði í gærmorgun orðin veik samt ekki með svo mikinn hita en ég fann að ég var ekki eins og ég átti að vera. Var með slæman hósta sem hreinlega brendi á mér lungun. Hélt mig heima en um kvöldið fór ég á læknavaktina með 39 stiga hita og þar fékk ég þennan úrskurð. Ég ætti auðvitað að vera á fullu í skólanum en það verður víst ekki alveg strax. Það er próf á mánudaginn og ég er svona að kíkja á efnið fyrir það þar sem ég er mun hressari í dag og næstum ekki með neinn hausverk. Verð samt að taka því rólega og taka lyfin mín. Krakkarnir hafa enn sloppið og Ingó líka og ég vona að það verði áfram. Valdemar Örn var sárlasinn af þessu og Aldís Dagmar er veik núna.

Við vorum á Akureyri um síðustu helgi og það var mjög gaman. Fór til Brynju á laugardeginum í afmæli Dagrúnar Kristínar og hitti fullt af skemmtilegu fólki og át yfir mig af kökum og heitum réttum. Um kvöldið skellt ég mér á Vélsmiðjuna með Auði vinkonu og Áslaugu systur Brynju og við dönsuðum alla nóttina. Ingó fór í mat til Bigga þetta kvöld með strákunum en ég fór ekki með. Svo kíkti ég á sunnudeginum á Arnhildi í nýju íbúðina og á Lillu og fór svo heim til Affíar. Gaman að ná að hitta svona margar. Fór ekki til Sollu vinkonu þar sem ég frétti að hún væri að koma suður en svo veiktist dóttir hennar og hún koma aldrei suður. Helgu Kvam hitti ég ekki heldur þar sem ég var bíllaus og vildi ekki taka pabba bíl of lengi. Verð að ná af henni næst.

Jæja best að gera smá í glósum og vona að mér batni sem fyrst.

5 comments:

Anonymous said...

Láttu þér nú batna vel og taktu þann tíma í það sem þú þarft, mátt ekki fara of fljótt af stað.

Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Litla lúsin mín láttu þér nú batna sem fyrst. Geri sko fastlega ráð fyrir heimsókn í Hafnarfjörðinn um leið og þú verður orðin frísk... he he
Vona að Ingó stjani við kellu sína þessa dagana;-)
Knús á þig.. Heiðrún

Anonymous said...

Láttu þér batna og tek undir að þú verðir að vera róleg í þessu. Þú hefur þá nógan tíma til að kvitta á blogg, trýnu og myndasíður-hehehe. Saknaðarkveðjur þín gamla syss.

brynjalilla said...

hlakka til að hitta þig vonandi sem fyrst aftur en án svínaflensu dúllan mín.

ellen said...

Krya på dig eins og madur segir í Sverige ;) ekki gott ad heyra thetta! en segi eins og litla syss, vonandi er stjanad vid thig :)